|
Ferðaskrifstofan Íslandsvinir býður upp á fjölbreyttar skíðaferðir í vetur þar sem allir ættu að geta fundið bæði gistingu og ekki síður skíðasvæði við sitt hæfi.
Einnig getum við aðstoðað einstaklinga og hópa með þeirra sérþarfir, þar sem við erum með mikla reynslu og þekkingu inn á mörg önnur skíðasvæði í Ölpunum.
Eigum einnig sæti til Ítalíu og Austurríkis 23.-30. desember 2011. Áhugasamir hafi samband við Elízu (eliza@explorer.is)
 |
Jólaævintýri í Tékklandi
Jólaævintýraferð til Tékklands 23.- 30.desember 2011.
Tilvalið fyrir fjölskyldur og aðra sem hafa lengi dreymt um að vera í öðru og spennandi umhverfi um jólin. Dvalið verður í fjallaþorpinu Spindlerúv Mlýn sem liggur í 700 m hæð y.s. nálægt landamærum Póllands. Möguleiki er á að framlengja ferð til 2. janúar 2012. Frábært verð frá kr. 214.900. Fararstjóri Elíza Guðmundsdóttir.
Tékkland 2012. Einnig verður boðið upp á vikuferð til Tékklands 27.febrúar 2012. Verð m. lyftupassa frá kr: 208.900,- Íslensk fararstjórn.
http://www.spindleruv-mlyn.com/en/skiing/ -
http://www.skiarealspindl.cz/
|
 |
Austurríki - Katschberg
Boðið verður upp á 3 ferðir til Katschberg í Kärnten 28.janúar-4.febrúar, 11.- 18.febrúar og 25.febrúar -3.mars.
Lítið fjallaþorp sem er frábær staður fyrir fjölskyldur þar sem er stutt í skíðasvæðið og mikið innifalið.
Verð frá 219.900. Íslensk fararstjórn. http://www.katschberg.at/en/
|
 |
Austurríki - Salbaach-Hinterglemm
Bjóðum enn sem fyrr ferðir til Saalbach-Hinterglemm. 3 brottfarir, 28.janúar-4.febrúar, 11.- 18.febrúar og 25.febrúar -3.mars. Beint flug til München
Saalbach-Hinterglemm eru 2 bæir sem liggja þétt saman og bjóða upp á allt sem góðir skíðabæir þurfa að hafa.
Mjög fjölbreyttar skíðabrekkur, og allir finna eitthvað sem þeim líkar, og ekki síður bretta iðkendur, en hér er hægt að sjá td. brettagarðana í Saalbach-Hinterglemm . Erlend fararstjórn.
|
 |
Brixen-Plose
Brixen í Suður Tírol. Samblanda af Ítalíu og Austurríki. Flogið er til Verona sem í 2 tíma akstursfjarlægð frá Brixen. Brixen er fjölskylduvænn skíðastaður þar sem hægt er að finna brekkur við allra hæfi. Erlend fararstjórn.
Boðið er upp á 2 brottfarir 11. og 18.febrúar 2012
www.plose.org www.brixen.org
|
Kveðja, Starfsfólk Íslandsvina
|