11.04.2011
Gngu- og tivistarferir SUMARI 2011

 

 

GÁRUR GARDAVATNS – GÖNGUFERÐ

28. maí – 4. júní  vikuferð 

Fararstjóri: Brandur Jón Guðjónsson

Ferðalýsing: Gist allan tímann við norðanvert vatnið á besta stað í bænum Riva del Garda. Daglega gönguferðir, siglingar og fl. í undursamlegu umhverfi. Flogið til og frá Milanó.    

Ferðin hentar: Öllum sem eru í þokkalegu líkamlegu formi.

Verð: frá 196.900 í tveggja manna herbergi. Mikið innifalið.  

 

ALPARÓSIR – ÚTIVISTAR-& GÖNGUFERÐ

28. júlí – 4. ágúst vikuferð

Fararstjóri: Ása María Valdimarsdóttir

Ferðalýsing: Fegurstu staðir Alpanna og góðir gististaðir: Saalbach- Hinterglemm og  Seefeld í Tírol í Austurríki, 3 nætur á hvorum stað og síðasta nóttin í München.

Gönguferðir, útivist og dekur eins og hverjum hentar.

Flogið til og frá München.

Ferðin hentar: Öllum sem unna útivist.

Verð: frá 199.900 í tveggja manna herbergi. Mikið innifalið.

 

FJALLAVÖTNIN FAGURBLÁ – GÖNGUFERÐ

2. – 9. ágúst vikuferð

Fararstjóri: Helgi Benediktsson

Ferðalýsing: Gengið á milli hinna fallegu vatna Wolfgangsee í Austurríki og Königsee í Þýskalandi. Afar falleg leið. Gist í fjallaskálum og hótelum. Farangur trússaður á milli.

Flogið til og frá München.  

Ferðin hentar: Vönu göngufólki í þokkalega góðu formi. 

Verð: frá 219.900 í tveggja manna herbergi. Mikið innifalið.

 

Einkennandi fyrir sérferðir Íslandsvina:

  • ekki of stórir hópar
  • hæfileg hreyfing miðað við getu 
    og markmið hvers hóps
  • persónuleg þjónusta
  • áhersla lögð á allt sem hreyfir 
    við hug og hjarta
  • þægilegar dagleiðir
  • reyndir fararstjórar


Farþegar Íslandsvina fá sérkjör í útivistarvöruversluninni FJALLAKOFANUM Reykjavíkurvegi 64 Hafnarfirði og Laugavegi 11 Reykjavík.

Flestar ferðir Íslandsvina eru styrktar af Orlofssjóði Kennarasambands Íslands, 
sjá nánar á 
www.ki.is

 

| More