29.03.2011
Slvena 24.jn til 2.jl 2011

Íslandsvinir bjóða upp á níu daga ferð til Slóveníu 24. Júní – 2. Júlí 2011. Flogið er í beinu flugi til höfuðborgarinnar Ljubljana til og frá Akureyri.  Dvalið verður í hinum margrómaða baðstrandarbæPortoroz, þar sem sannarlega er hægt að slaka á við ströndina,fara í spa og dekur og njóta lífsins á ýmsan máta. Frá Portoroz má líka fara í alls konar og fjölbreyttar dagsferðir, - akandi, hjólandi, gangandi eða siglandi. Hvort sem það er náttúruskoðun, gönguferð eða kynnisferð, - fjallaperlan Bled,  dropasteinshellarnir Postojna, Feneyjar,  Trieste, Króatía eða Ljubljana, Möguleikarnir eru fjölmargir og umboðsaðilar Íslandsvina á staðnum aðstoða við að bóka réttu ferðina. Nánari upplýsingar um ferðina

| More