Tékkland í febrúar 2012
Ferð Skíðaferð til Tékklands
Tími

27. febrúar - 5.mars 2012

 

 

Fararstjórn  Halldór Hreinson
Fjöldi Lágmark 15 manns
Fyrir hverja Fyrir allt skíðaáhugafólk - ekki síst fjölskyldur
Verð

Miðað við tveggja manna herbergi

208.900 miðað við eins manns herbergi

ATH

Einstaklega gott verð.

Skíðapassi innifalinn

 

Ferðskrifstofan ÍSLANDSVINIR – ICELAND EXPLORER verður með skíðaferðir til TÉKKLANDS í febrúar 2012.

Ferðatilhögun:

27.febrúar 2012 
Flogið til Berlínar kl 14:55 með Iceland Express og lent þar um kl. 19:15.
Ekið beint til Spindlerúv Mlýn í Tékklandi, en það er um 365 km leið. Tékkað inn á hótel strax við  komu
.

27. - 4. mars

Dvalið á 4 stjörnu Harmony Club Hotel og lífsins notið á skíðum.

5. mars
Ekið til Berlinar þaðan sem kvöldvélin heim fer kl. 20:05. Áætluð lending á Íslandi kl. 22:25.

Horfðu á skemmtilegt myndband frá ferð Íslandsvina til Spindlerúv Mlýn!

Þó að þetta sé fyrst og fremst skíðaferð er líka hægt að skoða sögulegar minjar, bragða á fjölbreyttum mat og komast í náin kynni við tékkneska og pólska fjallamenningu þar sem dvalið verður í fjallaþorpinu Spindlerúv Mlýn sem er í u.þ.b. 700 m.y.s. og liggur að landamærum Póllands.
 
Spindlerúv Mlýn svæðið er besta skíðasvæði Tékklands hvort sem litið er til svigskíða-, snjóbretta- eða gönguskíðaiðkunar eins og sjá má nánar á þessari síðu: http://www.skiarealspindl.cz/.
 
Hótel Harmony sem dvalið verður á í Spindlerúv Mlýn er staðsett miðsvæðis í hæstu fjöllum Tékklands og stendur sjálft í um 800 m.y.s. Það er nýtískulegt og býður uppá mjög góða aðstöðu fyrir sína gesti, en hægt er að skoða það nánar á heimasíðu þeirra www.harmonyclub.cz . Þetta er 4 stjörnu hótel með öllu, og hægt er að renna sér beint út á skíðasvæðið. Góðar byrjenda- og barnabrekkur eru við hótelið þar sem m.a. er boðið upp á kennslu.
 
Pólland.  Einn daginn verður boðið uppá ferð til Póllands í Karpach (Tatra) fjöllin, þar sem við komumst í færi við pólska menningu, listir og síðast en ekki síst pólskt fjallakjöt sem rennt er niður með pólskum drykkjum. Tilvalið fyrir þá sem vilja taka hvíld frá skíðaiðkun í einn dag (Ath. valkvætt og þessi dagsferð er ekki innifalin í heildarverði ferðarinnar).

Verð
kr. 208.900,- pr. mann í tveggja manna herbergi

kr. 219.900,- pr. mann í eins manns herbergi


Sérstakur barnaafsláttur ef barn er þriðji aðili í herbergi, og hægt er að sérpanta fjölskylduherbergi.
Innifalið er flug, flugvallaskattar og önnur gjöld tengd fluginu; gisting á Hótel Harmony 4 stjörnu með hálfu fæði (morgunverður og kvöldverðarhlaðborð), aðgangur að sundlaug. Greitt fyrir gufu; ferðir til og frá flugvelli erlendis; skíðapassi á allt svæðið og fararstjórn Halldórs Hreinssonar.
 
Ekki innifalið er dagsferðin til Póllands og annað það sem ekki er talið upp í innifalið.

SKILMÁLAR OG VERÐ
Uppgefið verð er staðgreiðsluverð og miðast við gengi evru 20. ágúst 2011
Staðfestingargjald kr. 25.000,- þarf að greiða innan 7 daga frá pöntun. Athugið að staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt ef til afbókunar kemur.
Lokagreiðsla
Til að staðgreiðsluverð gildi þarf að greiða ferð að fullu í síðasta lagi 7 vikum fyrir brottför, annars hækkar verð um 5%
Lágmarksþátttaka er 15 manns. 

Ferðaskrifstofan Íslandsvinir  áskilur sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.



Forfallatrygging er ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í mörgum tilfellum er forfallatrygging innifalin í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum fólks og er viðskiptavinum bent á að hafa samband við kortafyrirtæki sitt eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála. Verð ferðar er háð almennum gengisbreytingum, en breytist ekki eftir að hún er að fullu greidd.



 Ferðaskrifstofan Íslandsvinir er aðili að SAF (Samtök ferðaþjónustunnar, sjá www.saf.is) og því gildaalmennir skilmálar samtakanna um allar ferðir ferðaskrifstofunnar, auk þess sem viðkomandi flugfélag getur verið með sína skilmála til viðbótar.

 


Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9500 eða sendið fyrirspurn á info@explorer.is
| More