| Ferð | Skíðaferð til Tékklands |
| Tími |
23. - 30. desember 2011 Möguleiki á að framlengja til |
| Fjöldi | Lágmark 20 manns |
| Fyrir hverja | Fyrir allt skíðaáhugafólk - ekki síst fjölskyldur |
| Verð |
214.900 miðað við tveggja manna herbergi 249.900 miðað við eins manns herbergi |
| ATH |
Ferðin er til sölu til 30.október. Skíðapassi ekki innifalinn í verði. |
Ferðskrifstofan ÍSLANDSVINIR – ICELAND EXPLORER verður með jólaskíðaferð til TÉKKLANDS.
| Ferðatilhögun: 23. des 2011 Tékkað inn á hótel strax við komu. |
Horfðu á skemmtilegt myndband frá ferð Íslandsvina til Spindlerúv Mlýn!
Þó að þetta sé fyrst og fremst skíðaferð er líka hægt að skoða sögulegar minjar, bragða á fjölbreyttum mat og komast í náin kynni við tékkneska og pólska fjallamenningu þar sem dvalið verður í fjallaþorpinu Spindlerúv Mlýn sem er í u.þ.b. 700 m.y.s. og liggur að landamærum Póllands.
Spindlerúv Mlýn svæðið er besta skíðasvæði Tékklands hvort sem litið er til svigskíða-, snjóbretta- eða gönguskíðaiðkunar eins og sjá má nánar á þessari síðu: http://www.skiarealspindl.cz/.
Hótel Harmony sem dvalið verður á í Spindlerúv Mlýn er staðsett miðsvæðis í hæstu fjöllum Tékklands og stendur sjálft í um 800 m.y.s. Það er nýtískulegt og býður uppá mjög góða aðstöðu fyrir sína gesti, en hægt er að skoða það nánar á heimasíðu þeirrawww.harmonyclub.cz . Þetta er 4 stjörnu hótel með öllu, og hægt er að renna sér beint út á skíðasvæðið. Góðar byrjenda- og barnabrekkur eru við hótelið þar sem m.a. er boðið upp á kennslu.
Pólland. Einn daginn verður boðið uppá ferð til Póllands í Karpach (Tatra) fjöllin, þar sem við komumst í færi við pólska menningu, listir og síðast en ekki síst pólskt fjallakjöt sem rennt er niður með pólskum drykkjum. Tilvalið fyrir þá sem vilja taka hvíld frá skíðaiðkun í einn dag (Ath. valkvætt og þessi dagsferð er ekki innifalin í heildarverði ferðarinnar).
|
Verð kr. 249.900,- pr. mann í eins manns herbergi Skíðapassar Tékkland 2011-2012 Fullorðnir 22.400 Unglingar 12-16 ára 17.570 6-12 ára 14.420 "Eldriborgari" 63 og eldri 14.420 Börn undir 6 ára frítt Sérstakur barnaafsláttur ef barn er þriðji aðili í herbergi, og hægt er að sérpanta fjölskylduherbergi. Innifalið er flug, flugvallaskattar og önnur gjöld tengd fluginu; gisting á Hótel Harmony 4 stjörnu með hálfu fæði (morgunverður og kvöldverðarhlaðborð), aðgangur að sundlaug, heitum potti og gufu í 2 tíma á dag. Ferðir til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. |
Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Forfallatrygging er ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í mörgum tilfellum er forfallatrygging innifalin í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum fólks og er viðskiptavinum bent á að hafa samband við kortafyrirtæki sitt eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála. Verð ferðar er háð almennum gengisbreytingum, en breytist ekki eftir að hún er að fullu greidd.
Ferðaskrifstofan Íslandsvinir er aðili að SAF (Samtök ferðaþjónustunnar, sjá www.saf.is) og því gildaalmennir skilmálar samtakanna um allar ferðir ferðaskrifstofunnar, auk þess sem viðkomandi flugfélag getur verið með sína skilmála til viðbótar.