Brixen-Plose - 2 brottfarir 11. og 18.febrar 2012
Ferð Skíðaferð, Brixen-Plose
Tími

Tvær ferðir eru í boði.

Takmarkaður sætafjöldi í hverja ferð.
11.-18. febrúar og
18.- 25.febrúar 2012

Fararstjón Nei  
Flug

Leiguflug með Icelandair til og frá Verona.

Ferðir á staðinn

Innifalinn akstur til og frá flugvelli ytra. Tekur um 2 1/2 klst hvor leið.

Yfirlitsmynd af Brixen

Rétt sunnan við Brennerskarðið, í Suður-Tíról á Ítalíu, kúrir lítill fallegur bær sem heitir Brixen. Í hæðunum fyrir ofan bæinn er eitt best geymda leyndarmál Ítalíu, skíðasvæðið Brixen-Plose, sem er stundum kallað „sólarsvalir Dólómítanna“. Ólýsanleg tilfinning er að njóta þaðan útsýnis yfir hina stórbrotnu Alpaveröld úr allt að 2.500 m hæð og renna sér síðan niður lengstu skíðabrekku í Suður-Tíról, Trametsch, sem er 9 km á lengd. En það er bara byrjunin!

Brixen-Plose skíðasvæðið er snjóöruggt og fjölskylduvænt. Þar eru 43 km af skíðabrekkum sem henta öllum,  10 skíðalyftur og kláfar. Ef það dugar ekki gildir skíðapassinn líka á  önnur skíðasvæði í nágrenninu, þ.e.  Gitschberg-Meransen og  Jochtal-Vals í Eisachtal sem gerir samanlagt 87 km af brekkum og 26 lyftur. Ókeypis skíðarúta fer á milli svæðanna. Skíðaskólar eru til staðar og einnig er hægt að leigja skíði og útbúnað ef þess er óskað.  

Út um allt er að finna veitingastaði og bari. Afþreying af ýmsu tagi er  í boði, s.s. leiksvæði, töfrateppi, brettagarður og ný 11 km löng sleðabraut svo eitthvað sé nefnt.

Brixen map

Brixen er í um 10 km fjarlægð frá Brixen-Plose skíðasvæðinu og ókeypis skíðarúta fer daglega á milli. Brixen er gamall menningarbær með mikla sögu, þar er margt að skoða og söfn, veitingastaðir og verslanir laða marga að. Þess vegna er hér kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja sameina skíðaferð og menningarlíf.  Með “Brixenkortinu” sem allir farþegar okkar fá, eru ennþá fleiri og ódýrari leiðir til að njóta lífsins í Brixen Plose. Meðal annars í Acquarena sem er einstök vatnaveröld í glæsilegu húsnæði sem er 12.000 fermetrar. Með Brixenkortinu er frítt inn í sund en sauna og önnur þjónusta gegn gjaldi. Því ekki að skella sér til Suður-Tíról og njóta útiveru og menningar með allri fjölskyldunni í undurfögru umhverfi! Gististaðir okkar eru bæði í Plose  við skíðabrekkurnar og Brixen. 

Vefsíða Brixen  |  Myndir frá Brixen

Hagnýtar upplýsingar


Gistimöguleikar í boði:

Boðið verður upp á gistingu á Residence Gasser í Brixen.  Í flestum tilvika er hægt að fá 3ja og 4ra manna fjölskylduherbergi en það verður að staðfesta í hvert sinn. Barnaafsláttur fæst einungis ef barn er með tveimur fullborgandi í gistingu.  Einnig er hægt að athuga með aðra gistingu við skíðasvæðið í Plose ef áhugi er fyrir hendi.  

Hótelin:      | Residence Gasser  |  

 

Residence Gasser
StjarnaStjarnaStjarnaStjarna

Gruner Baum

Gruner Baum

Staðsetning:  Í miðbæ Brixen. Skíðarúta stoppar við hótelið. 8 km að skíðasvæði (ca. 20 mín).
Herbergi:  Rúmgóð herbergi  með sér baðherbergi, hárþurrku, sjónvarpi, minibar, öryggishólfi. Einnig er hægt að fá standard herbergi. Hægt að fá þriggja og fjögurra manna herbergi (aukarúm). Einstaklingsherbergi eru í boði. Ekki er hægt að lofa herbergi með svölum.  
Aðstaða á hóteli:
Lyfta, skíðakjallari, öryggishólf í móttöku, internet (gegn gjaldi).
Vatnsgufubað og sauna, hvídaraðstaða og gegn gjaldi ljósabekkir og nudd. 

Lyfta, skíðakjallari og morgunmatur.

Residence Gasser tilheyrir Hótel Gasser (300 m fjarlægð). Þar er boðið upp sjónvarpsherbergi, a la carte veitingastaður, hótelbarir, borðtennis, innisundlaug, sauna, vatnsgufa, líkamsræktarherbergi og baðsloppur.  Ljósaklefar og nudd gegn gjaldi.  30 % afsláttur er af spameðferðum. 

Fæði:  Hálft fæði, morgunmatur og 4ra rétta kvöldverður. 
Verðdæmi: Frá 202.080 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið í verði: Flug, flugvallarskattar, ferðir til og frá flugvelli erlendis, gisting í 7 nætur, fæði eins og tilgreint er.
 
SKILMÁLAR OG VERÐ
Uppgefið verð er staðgreiðsluverð og miðast við gengi evru 20. ágúst 2011
Staðfestingargjald kr. 25.000,- þarf að greiða innan 7 daga frá pöntun. Athugið að staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt ef til afbókunar kemur.
Lokagreiðsla
Til að staðgreiðsluverð gildi þarf að greiða ferð að fullu í síðasta lagi 8 vikum fyrir brottför, annars hækkar verð um 5%
Lágmarksþátttaka er 10 manns. 

Ferðaskrifstofan Íslandsvinir og fararstjórar hennar áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.



Forfallatrygging er ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í mörgum tilfellum er forfallatrygging innifalin í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum fólks og er viðskiptavinum bent á að hafa samband við kortafyrirtæki sitt eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála. Verð ferðar er háð almennum gengisbreytingum, en breytist ekki eftir að hún er að fullu greidd.



Ferðaskrifstofan Íslandsvinir er aðili að SAF (Samtök ferðaþjónustunnar, sjá www.saf.is) og því gildaalmennir skilmálar samtakanna um allar ferðir ferðaskrifstofunnar, auk þess sem viðkomandi flugfélag getur verið með sína skilmála til viðbótar.

PDF skjal með þssum upplýsingum má sjá hér.

Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9500 eða sendið fyrirspurn á info@explorer.is
 
| More