Fararstjrar skaferum 2011

Elíza Guðmundsdóttir er fædd 1962 í Reykjavík. Á námsárunum  í Þýskalandi starfaði hún sem fararstjóri í Þýskalandi og Austurríki.  Eftir að heim kom hefur hún aðallega starfað í ferðaþjónustu, bæði við móttöku á erlendum ferðamönnum og eins við að kynna Íslendingum ferðir til útlanda. Elíza hefur stundað skíði frá unga aldri og hefur prófað marga skíðastaði erlendis og líður hvergi betur en í skíðabrekkum í góðra vina hópi. 

 

 

 

 

 

Halldór Hreinsson  er fæddur árið 1957 í Reykjavík.  Hann hefur alveg frá unga aldri haft mikinn áhuga á allri almennri útivist og  þá ekki síst skíðaiðkun hvers konar.  Hann hefur verið fararstjóri  í skíða – og gönguferðum innanlands og erlendis sl. 15 ár.  Stuttu eftir að Halldór lauk námi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, tók hann við rekstri Skátabúðarinnar sem hann stýrði til ársloka 1998.  Þaðan fór hann yfir í Fálkann og svo Útilíf , en er nú  eigandi að Fjallakofanum og ferðaskrifstofunni Íslandsvinum sem stendur fyrir skíðaferðum, göngu-  og fleiri skemmtilegum sérferðum.  

 

 

 

 

 


 

  

 



 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

| More